Færsluflokkur: Bloggar

Bitlingar Páls Magnússonar útvarpsstjóra.

Á þessari bloggsíðu minni ætlaði ég mér að tala um einelti, en fann mig knúinn til að blogga um væntanlegt þululeysi RÚV.

Af hverju þurfti endilega að leggja niður þulustarfið á Ríkissjónvarpinu? Af hverju tekur Páll Magnússon ekki sig saman í andlitinu og lækkar sín ofurlaun margfalt?

Og hvað, af hverju aðhefst Katrín Jakobsdóttir ekkert? Það sýnir glöggt að vinstristjórnin er ekki að vinna vinnuna sína.

Og um leið þakka ég þulum RÚV samfylgdina, og segi við þær að ég mun sakna þeirra frá sjónvarpsskjánum.


mbl.is Þakka þjóðinni samfylgdina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einelti á að verða bannað með lagasetningu frá Alþingi.

Ég ætla að ljá máls á mjög alvarlegu umræðuefni, sem kallast einelti á mannamáli.

Ónefndur Facebookvinur minn benti mér á að í Skotlandi væri einelti bannað með lögum, en af hverju ekki að banna einelti með lögum hér á Fróninu?

Rökin með að banna einelti hér á Íslandi eru tvenns konar, t.d. að Rök 1. Langvarandi einelti orsakar þunglyndi og kvíðaröskun, Rök 2. Langvarandi einelti án inngrips skólastjóra eða - stjórnar hefur orðið beinn valdur að ótal sjálfsmorðum.

Hér á Fróninu er starfrækt sérstök Kynferðisbrotadeild innan lögreglunnar, en af hverju ekki að banna einelti með vísan til áðurnefndra raka og stofna sérstaka Eineltisafbrotadeild innan lögreglunnar?

 


Um bloggið

Þjóðfélagsmálin krufin.

Höfundur

Jóhann Ingi Kristinsson
Jóhann Ingi Kristinsson
Ég er 25 ára bloggari og ætla að blogga um allt á milli heima og geima.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband